Bæjarstjórn
Fundargerð Bæjarstjórnar 71
71. fundur
Fundur haldinn í Bæjarstjórn Hornafjarðar, fimmtudaginn 18. mars 2004, kl. 16:00 í Ekru.
Mætt voru: Björn E. Traustason, Björk Pálsdóttir, Vignir Júlíusson, Elín Magnúsdóttir, Reynir Arnarson, Aðalheiður F. Björnsdóttir og Eyjólfur Guðmundsson. Einnig Albert Eymundsson, Inga Jóna Halldórsdóttir, Ásta H. Guðmundsdóttir, Helgi Már Pálsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir
- Bæjarráð Hornafjarðar 240. fundur 12. febrúar 2004.
- Félagsmálaráð Hornafjarðar 104. fundur 3. febrúar 2004.
- Umhverfisnefnd Hornafjarðar 41. fundur 9. febrúar 2004.
Vignir spurðist fyrir um hvað menn sjái fyrir sér varðandi samning um skólaakstur til framtíðar, hann spurði einnig um þá ákvörðun bæjarráðs að hætta greiðslu veiðilauna til annarra en ráðinna veiðimanna. Bæjarstjóri sagði ákveðin tímamót varðandi rétt til sérleyfa verða eftir ár. Í kjölfar breyttra aðstæðna sem þá skapast sé eðlilegt að bjóða þjónustuna út aftur. Varðandi ákvörðun um skertar greiðslur verðlauna fyrir veiði á ref og mink sagði bæjarstjóri að hér sé um ákveðin mótmæli að ræða vegna skertra greiðslna ríkisins vegna veiðanna.
Bæjarstjóri ræddi um störf nefndar sem skila á tillögum um reglugerð vegna væntanlegrar stofnunar Vatnajökulsþjóðgarðs.
Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi bókun vegna reglugerðar um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðar:
„Stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs er mikið hagsmunamál fyrir byggðirnar sem liggja að jöklinum. Það er mikilvægt að vanda allan undirbúning í fullri sátt og samvinnu við heimamenn.
Þetta á einkum við um íbúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem alla tíð hafa verið í mesta nábýli við Vatnajökul með óþægindum þess og kostum.
Bæjarstjórn Hornafjarðar ítrekar þess vegna enn og aftur eftirfarandi áherslur:
• Tryggt verði fjármagn til rekstur starfsstöðva og til að bæta aðgengi að fjölmörgum náttúruperlum innan þjóðgarðsins og um leið að hafa stjórn á mikilli umferð sem allar spár benda til varðandi framtíðina.
• Huga þarf að öryggismálum þeirra sem fara um þjóðgarðinn og gera hjálpar- og björgunaraðilum fært að sinna verkefnum sínum sem best.
• Taka verður tillit til hefðbundinnar nýtingar íbúa umhverfis þjóðgarðinn og innan hans s.s. vegna landbúnaðar og veiða.
Verði þjóðgarðurinn stofnaður innan gildandi lagaramma er mikilvægt að tryggt sé að lagabreytingar um þjóðgarðinn, sem sérstaka stofnun með eigin stjórn og þátttöku heimaaðila, verði samþykktar tímanlega t.d. fyrir árslok 2005 eða snemma árs 2006 og taki gildi strax að loknum sveitarstjórnarkosningum það ár. Jafnframt má hugmyndin um stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls ekki tefja áform um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.
Bæjarstjórnin telur eðlilegt að leitað verði umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga um reglugerðardrögin áður en þau verða afgreidd því nauðsynlegt er að fá lögfræðiskýringar og svör við ýmsum álitamálum m.a. varðandi valdsvið sveitarfélaganna s.s. skipulagsvald o.fl.“
Forseti bar bókunina upp til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir bókunina með öllum greiddum atkvæðum.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 241. fundur 19. febrúar 2004
• Byggingar- og skipulagsnefnd 50. fundur 12. febrúar 2004.
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 105 . fundur 10. febrúar 2004.
• Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 56. fundur 11. febrúar 2004.
• Menningarmálanefnd Hornafjarðar 54. fundur 11. febrúar 2004.
• Samband íslenskra sveitarfélaga 710. fundur 23. janúar 2004 – til kynningar.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 242. fundur 2. mars 2004.
• Félagsmálaráð Hornafjarðar 106 . fundur 24. febrúar 2004.
• Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 48. fundur 28. janúar 2004.
• Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar 49. fundur 24. febrúar 2004.
• Skólanefnd Hornafjarðar 58.fundur 24.febrúar 2004.
• Heilbrigðiseftirlit Austurlands 44. fundur 18. febrúar 2004. – til kynningar
Eyjólfur ræddi hækkanir á þjónustu og spurði hvort um stefnubreytingu væri að ræða s.s. varðandi heimaþjónustu og afslátt af fasteignaskatti. Eyjólfur ræddi um fyrirhugaða lokun Óla priks og spurði um áætlanir um framgang málsins. Bæjarstjóri sagði að ekki hafi verið innheimt gjald fyrir heimaþjónustu og að gert athugasemd við það frá ráðuneytinu að stofnunin nýtti sér ekki fyrirliggjandi heimildir til þess. Nú hafi hins vegar verið ákveðið að innheimta gjald fyrir þessa þjónustu og er innheimtan tekjutengd. Ákvörðun um breytingu á afslætti á fasteignaskatti var síðan tekin eftir að ábendingar bárust frá félagsmálaráðuneyti og umboðsmanni alþingis um túlkun heimildarákvæða þeirra sem ákvörðunin byggir á. Bæjarstjóri sagði formlegar ákvörðunar um framtíð Óla priks að vænta á næsta bæjarstjórnarfundi í byrjun apríl.
Vignir ræddi um mismunandi fjölda samræmdra prófa sem nemendur fá leiðbeiningar um að taka eftir því hvaða framhaldsskóla þau stefna á. Hann telur þetta bera vott um lítinn metnað í skólastarfi almennt. Bæjarstjóri benti á að það getur í sumum tilvikum verið nemendum til trafala að taka öll samræmd próf ef þess er ekki þörf vegna þess náms sem þau stefna á.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarráð Hornafjarðar 243. fundur 11. mars 2004.
• Atvinnumálanefnd Hornafjarðar 11. fundur 1. mars 2004.
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 53. fundur 3. mars 2004.
• Æskulýðs og tómstundaráð 57. fundur 1. mars 2004.
Björn spurðist fyrir um verkefni sem tengist Orf líftækni. Hann spurði einnig um fyrirhugaða kvikmyndagerð í sveitarfélaginu. Reynir sagði frá því að fyrirhugað er að gera nokkra tilraunareiti og rækta þar korn af sama yrki og það erfðabreytta korn sem fyrirtækið hefur gert tilraunir með. Eyjólfur ræddi atvinnuástandið í sveitarfélaginu, hvatti til umræðna um málið og að skoða þurfi mögulega aðkomu bæjaryfirvalda að atvinnuuppbyggingu. Bæjarstjóri sagði frá fyrirhugaðri gerð kvikmyndar um Bjólfskviðu.
Fundargerð samþykkt.
Bæjarstjórn Hornafjarðar 70. fundur, 12. febrúar 2004, áður samþykkt.
2. 3ja ára áætlun – seinni umræða
Bæjarstjóri tók til máls og fór yfir helstu niðurstöðutölur áætlunarinnar. Ekki hafa komið fram tillögur um breytingu á áætluninni frá fyrri umræðu.
Eyjólfur lagði fram eftirfarandi bókun:
„Í stefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar í æskulýðs- íþrótta- og tómstundamálum undir liðnum Forgangsröðun framkvæmda stendur undir fyrsta áherslulið „Ljúka uppbyggingu á Sindravöllum með grassvæðum og gervigrasvelli“ Í tilefni af afgreiðslu þriggja ára áætlunar vill bæjarfulltrúi Kríunnar lýsa yfir stuðningi við þennan lið og hvetur jafnframt til þess að þegar verði hafinn undirbúningur að byggingu gervigrasvallar þannig að taka megi hann í notkun á árinu 2005.“
Forseti bar 3ja ára áætlun upp til afgreiðslu. Bæjarstjórn samþykkir áætlunina samhljóða.
3. Ósk um lausn frá setu í bæjarstjórn
Forseti las upp bréf frá Ármanni Guðmundssyni þar sem hann biðst lausnar frá störfum sem varamaður í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkti beiðni Ármanns með öllum greiddum atkvæðum.
4. Fyrirspurnir
Eyjólfur Guðmundsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn í 4 liðum:
a) Hefur af hálfu bæjarstjórnar verið unnið skipulega að því á koma á fót Náttúrstofu Suðausturlands?
b) Ef ekki, eru þú uppi áform um slíka vinnu?
c) Hvert er mat bæjarstjóra á möguleikum þess að stofna Náttúrustofu Suðausturlands?
d) Hvernig telur þú ef af verður rétt að tengja slíkt verkefni við önnur verkefni svo sem jöklasetur, háskólasetur og fuglaskoðunarmiðstöð?
Bæjarstjóri gaf eftirfarandi svör við fyrirspurnunum:
Spurning a)
Ekki hefur verið unnið skipulega né formlega að því að koma á fót Náttúrustofu Suðausturlands. Aftur á móti hefur verið rætt töluvert við lykilaðila um málið þegar tækifæri hafa gefist s.s. umhverfisráðherra og starfsfólk á hans vegum, þingmenn og fleiri. Málið hefur verið reifað við fulltrúa Skaftárhrepps en Náttúrustofu Suðausturlands mun verða ætlað að þjóna þeirra svæði líka. Ég skynja það svo að ráðuneytið mun setja það alfarið í hendur heimamanna að koma sér saman um staðsetningu.
Spurning b)
Samningur um Náttúrustofu á Norðausturlandi er tilbúinn til undirritunar og fram hefur komið hjá umhverfisráðherra og starfsmenn í ráðuneyti að næsta náttúrustofa verði staðsett á Suðausturlandi fáist fjármagn í verkefnið sem er háð ákvörðun fjárlaganefndar alþingis. Ég tel rétt að á næstunni verði ákveðið hvernig standa skuli að heimavinnu okkar og í hvaða farveg sé skynsamlegast að setja það. Eins og kunnugt er hafa þessi mál töluvert tengst umræðu um aðrar stofnanir hér eins og fram kemur í síðustu spurningunni.
Spurning c)
Ég tel möguleikana mjög góða, fyrst og fremst vegna þess að búið er að staðsetja náttúrustofu á okkar svæði eins og ég tók fram áður. Jafnframt er aðstaða fyrir hendi í ákjósanlegu umhverfi í Nýheimum. Þess vegna er rétti tíminn til að setja málið í vinnslu nú.
Spurning d)
Umfjöllun um náttúrustofu hefur einmitt tengst umræðu um þessar stofnanir og jafnframt undirbúningsvinnu vegna Vatnajökulsþjóðgarðs. Það má velta því fyrir sér hvernig við náum mestum árangri í þessari baráttu. Er það með því að samræma eða sameina umræddar stofnanir og rekstur þeirra eða að halda þeim aðskildum. Persónulega er ég þeirra skoðunar að best færi á því að sem mest af þessari starfsemi lyti sameiginlegri stjórnun á einhvern hátt eða að öðrum kosti væri mikil og náin samvinna milli þeirra. Það sem styrkir mig í þeirri skoðun er reynsla annarra af rekstri náttúrustofa og sambærilegum verkefnum. Aftur á móti er ljóst að það er ekki auðvelt úrlausnarefni.
Eyjólfur þakkaði góð og jákvæð svör og sagðist vonast til að málið fengi skjótan framgang.
Björk Pálsdóttir lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:
Hvað hefur sveitarfélagið hugsað sér að gera til að efla rekstur upplýsingamiðstöðvarinnar?
Bæjarstjóri svaraði fyrirspurninni:
Eins og öllum er kunnugt hefur upplýsingamiðlun sú sem sveitarfélagið hefur sinnt eða tekið þátt í, í samstarfi við aðra, ekki verið í nægilega föstum skorðum síðustu ár. Ekki hefur verið samstaða m.a. milli hagsmunaaðila um hvernig þessum málum sé best fyrir komið. Nú er í burðarliðnum að Menningarmiðstöð Hornafjarðar taki að sér rekstur og þjónustu upplýsingamiðstöðvar og að hún vistist með höfuðstöðvar í Nýheimum.
Þessi tillaga hefur fengið jákvæð viðbrögð hjá hagsmunaaðilum og leiðir vonandi til öflugrar upplýsingaþjónustu til góðs fyrir allt samfélagið.
Bæjarstjóri gerði svo stuttlega grein fyrir því hvernig skiptingu þeirra fjármuna sem nú er úthlutað til upplýsingamiðstöðva er hagað. Fjármununum er úthlutað til landshlutasamtaka ferðamálafélaganna en ekki til sveitarfélaganna sjálfra. Bæjarstjóri telur það mikið réttlætismál að bæta hlut okkar í úthlutun þessa fjármagns.
Fundi slitið kl. 18:00


