Breyting á gjaldskrám hjá sveitarfélaginu
Breyting á gjaldskrám hjá sveitarfélaginu
Þann 1. janúar taka nýjar gjaldskrárbreytingar gildi. Skólamáltíðir í grunn og leiksskólum hækka um 15% einnig er gjaldskrárhækkun í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu um 10%. Þá hafa gjöld í Sundlaug Hafnar hækkað. Fullorðinsgjald í Sundlaug Hafnar er það sama en barnagjald hækkar úr 180 kr. í 200. kr. og breytingar á miðakerfi sundlaugarinnar.
Gjaldskrá fyrir leikskóla fylgir nú vísitölu og er uppreiknuð fyrsta ágúst ár hvert er nú fyrir 8 klst. kr. 17.976
Þrátt fyrir þessar hækkanir eru gjöld hjá sveitarfélaginu með þeim lægstu, ef skoðuð er gjaldskrá hjá Sveitarfélaginu og sambærilegum sveitarfélögum þá kemur í ljós að Hornafjörður er með þeim lægstu á leikskólagjöldum, fæðisgjöldum og tónskólum. Skoðuð voru sjö sveitarfélög á Austurlandi og tekið meðaltal gjalda af þeim eins og sýnt er hér að neðan. Samanburðarsveitarfélögin sem um ræðir eru Djúpivogur, Fljótsdalshérað, Fjarðabyggð, Seyðisfjörður, Vopnafjörður og Breiðdalsvík. Þá má geta þess að ekki er tekið til greina gjaldskrárhækkanir hjá öðrum sveitarfélögum en Hornafirði 1. janúar 2013.
Leikskólagjald
Leikskólagjöld eru með þeim lægstu hjá Hornafirði eða 17.976 á mánuði fyrir átta tíma vistun. Fæðisgjald er ekki með í þessari upphæð.
Samanburður á leikskólagjöldum milli sveitarfélaga á Austurlandi miðað við 8 tíma vistun í krónum talið.
| Hornafjörður | Seyðisfjörður | Fjarðarbyggð | Meðaltal |
| 23.887 |
19.920 | 25.332 | 23.583 |
Tónskólagjald
Þegar samanburður er gerður á gjaldskrá Tónlistarskóla kemur í ljós að skólagjald fyrir einstakling á grunnskólaaldri í hálft ár er lægra í Tónskóla Hornafjarðar en í samanburðarsveitarfélögum. Gjaldið er 21.715 en meðaltalsgreiðslur eru 26.460.
Samanburður á sveitarfélögum á Austurlandi og meðaltal tekið á 7 sveitarfélögum í krónum talið.
| Hornafjörður | Seyðisfjörður | Fjarðarbyggð | Meðaltal |
| 21.715 | 25.892 | 26.800 | 26.460 |
Máltíð í Grunnskólum
Fæðisgjöld í grunnskólum eru enn með þeim lægstu hjá Hornafirði eða 300 kr. hver máltíð
| Hornafjörður | Seyðisfjörður | Fjarðarbyggð | Meðaltal |
| 300 | 400 | 435 | 414 |
|




Skrifa athugasemd