Útboð á viðbyggingu leikskóla
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir útboð á viðbyggingu við leikskólann Krakkakot.
Óskað er eftir tilboðum í verkið. „Víkurbraut 24-Krakkakot - viðbygging“ eins og því er lýst í útboðsgögnum.
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.
Innifalið í tilboði skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
- Um er að ræða fullkláraða viðbyggingu úr steypu með timburþaki og stendur húsið á steyptum sökkli.
- Búið er að jarðvegsskipta undir sökklum.
- Helstu stærðir eru ca. brúttó: Viðbygging : 144 m²
- Mótafletir : 317 m²
- Steypustyrktarstál : 2850 kg.
- Steypa : 46 m³ Kraftsperrur : 12 stk.
- Verklýsing – útboðslýsing - teikningar
Útboðsgögn má nálgast á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar að Hafnarbraut 27 Höfn frá og með miðvikudeginum 17. október 2012 gegn 5.000 kr. greiðslu.
Einnig er hægt að sækja útboðsgögnin hér að neðan og fá lykilorð til að opna gögnin með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is
Verklýsing Víkurbraut 24 Krakkakot viðbygging (pdf - 0,5Mb)
Vattará teikningasett 08.10.2012 Krakkakot (pdf - 3,8Mb)
Teikningar Verkfræðiþjónustan (pdf - 3,1Mb)
Teikningar KRark ( pdf - 1,5Mb )
Magnskrá Víkurbraut 24 leikskóli viðbygging (Excel - 80 Kb)
ATH áður en skjöl eru opnuð þarf að vista þau í tölvu viðkomandi, best er að hægrismella viðkomandi skjal og velja "Save Link As" .Tilboðum skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins eigi síðar en fimmtudaginn 8. nóvember 2012 kl. 14:00 er þau verða opnuð.
Nánari upplýsingar veitir Björn Imsland, Umsjónamaður fasteigna
bjorni@hornarfjordur.is
Sími: 4708000 eða 8948413




Skrifa athugasemd