Lausar stöður við leikskólann Lönguhóla
Lausar stöður við leikskólann Lönguhóla Hornafirði
Tímabundið:
Deildarstjóri í eitt ár frá 25.ágúst 2012 til 26. ágúst 2013.
Framtíðarstörf:
Leikskólakennari, grunnskólakennari, þroskaþjálfi eða aðrir með sambærilega menntun í 100% störf og hlutastörf. Ef ekki fást uppeldismenntaðir starfsmenn í störfin verða ráðnir starfsmenn í stöðu ófaglærðra.
Umsækjendur þurfa að hafa góða samskiptahæfileika, sjálfstæði í vinnubrögðum, vera jákvæðirr, samviskusamir, hafa gaman og ánægju af útiveru og að vinna með börnum.
Laun greidd samkvæmt samningum launanefndar Sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í ágúst 2012.
Nánari upplýsingar hjá Margréti Ingólfsdóttir leikskólastjóra í síma 4708-2490 eða netfangið margreti@hornafjordur.is
Umsóknir skal senda á Margréti leikskólastjóra fyrir 6. júlí 2012.





Skrifa athugasemd