Fréttir
UMF Sindri
UMF Sindri
Barist á Sindravöllum (úr myndasafni)

04.04.2012 Fréttir

Hafðu áhrif á stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum

Laugardaginn 24. mars sl. var haldinn opinn stefnumótunarfundur um æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamál í Nýheimum. Góð mæting var á fundinn og umræður á honum voru mjög góðar. Niðurstöður fundarins munu sannarlega nýtast við áframhaldandi vinnu við gerð stefnu í málaflokknum.

Á þessum tímapunkti er rétt að kynna niðurstöður fundarins fyrir almenningi svo fólki gefist tækifæri til að kynna sér hugmyndir og áherslur fundarins. Niðurstöðurnar er  að finna í meðfylgjandi pdf – skjali. Einnig er fólk hvatt til þess að senda undirrituðum athugasemdir eða frekari hugmyndir um nauðsynlegar aðgerðir eða áherslur í málaflokknum í tölvupósti.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd mun funda 18. apríl nk. þar sem niðurstöður fundarins og viðbætur í kjölfarið verða teknar til efnislegrar umfjöllunar. Áður en endanlega stefna verður samþykkt verða drög að henni send hagsmunaaðilum til umsagnar auk þess að þau verða kynnt almenningi.

Niðurstöður stefnumótunarfundar um æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamála (pdf)

Stefán Ólafsson, framkvæmdastjóri fræðslu – og félagssviðs
stefan@hornafjordur.is

Gunnar Ingi Valgeirsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja
gunnaringi@hornafjordur.is

Árni Rúnar Þorvaldsson, tómstundafulltrúi
arni@hornafjordur.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica