Fréttir
Vinnuskóli II 2010
Vinnuskóli II 2010

28.03.2012 Fréttir

Hreinsunarvika í Sveitarfélaginu Hornfirði

Vikuna 26. – 30. mars verður lögð áhersla á fegrun umhverfisins í Sveitarfélaginu Hornafirði.  Umhverfi stofnana og opin svæði á vegum sveitarfélagsins verða hreinsuð.  Íbúar og fyrirtæki eru jafnframt hvött til að taka til á lóðum og jörðum sínum þessa daga.  Mánudaginn 2. apríl munu starfsmenn sveitarfélagsins og ungmennafélagið Sindri safna saman garðaúrgang,i svo sem afklippum af greinum o.fl   sambærilegu.  Íbúar skulu leggja gróurinn á aðgengilegan stað við lóðamörk.  Kjósi íbúar að fara sjálft með garðaúrgang skal það fara með þann úrgang íút í Fjárhúsavík ( Ægisíðu ) og ganga vel um svæðið, hirða upp rusl og sturta úr pokum.  Áhaldahúsið mun vakta svæðið.  Grunnskóli Hornafjarðar munu halda sinn árlega hreinsunardag 29. mars og enda daginn með umhverfishátíð.     

 

Í apríl verður lögbýlum boðið upp á flutning á stærri hlutum svo sem bílhræjum, ónýtum landbúnaðartækjum og fleiru sambærilegu þeim að kostnaðarlausu.  Aðilar þurfa að safna hlutunum saman á einn aðgengilegan stað þar sem þeir verða svo sóttir.  Þeir sem óska þess að taka þátt í þessu átaki eru beðnir að lista upp þá hluti sem þeir vilja að verði sóttir og skila til Gunnlaugs Rúnars Sigurðssonar eða Hauks Inga Einarssonar fyrir föstudaginn 30. mars n.k

 

Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, runars@hornafjordur.is   s: 470-8007

 

Haukur Ingi Einarsson, haukuri@hornafjordur.is s: 470-8003

 

Söfnun til sveita á brotajárni mun eiga sér stað þriðjudaginn 10. apríl –  föstudaginn 13. apríl n.k 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica