ATVINNA - FRÆÐSLUSTJÓRI
Laust er til umsóknar starf fræðslustjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Um er að ræða 100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Fræðslustjóri er yfirmaður á sviði skóla-, æskulýðs- og tómstundamála. Undir starfið heyra leikskólar, grunnskólar, tónskóli, íþróttamannvirki og félagsmiðstöð.
Helstu verkefni:
· Ráðgjöf og stuðningur við skólastarf, þar á meðal kennsluráðgjöf.
· Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur skóla í ýmsum þáttum sem snúa að starfi skólanna svo sem í lagalegum-, faglegum – og rekstrarlegum málum fyrir leik- grunn- og tónskóla.
· Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur íþróttamannvirkja og tómstundamála.
· Skipulag og eftirlit með sérfræðiþjónustu við skóla.
· Áætlanagerð í skóla-, æskulýðs- og íþróttamálum.
· Eftirlit með skólastarfi í sveitarfélaginu.
· Þverfagleg vinna að málefnum skólabarna ásamt starfsmönnum félagsþjónustu sveitarfélagsins.
· Stefnumótun í málaflokkum sem falla undir starfssvið fræðslustjóra.
· Samskipti við aðila utan sveitarfélagsins í viðkomandi málaflokkum.
· Starfsmaður skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar.
Hæfniskröfur
· Háskólapróf sem nýtist í starfi.
· Góð þekking á sviði leik- og grunnskóla.
· Reynsla af störfum innan skólakerfisins nauðsynleg.
· Skipulagshæfileikar, ríkulegur þjónustuvilji og lipurð í mannlegum samskiptum.
· Góð íslenskukunnátta.
· Reynsla af stjórnun æskileg.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, sími 470-8000, netfang hjaltivi@hornafjordur.is,
Stefán Ólafsson framkvstj. fræðslu- og félagssviðs, sími 470-8002, netfang stefan@hornafjordur.is.
Umsóknarfrestur er til 19. mars 2012 og skal stíla umsókn á Sveitarfélagið Hornafjörð, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði, merkt fræðslustjóri.





Skrifa athugasemd