Fréttir
Vinnuskóli 2010
Vinnuskóli 2010

23.02.2012 Fréttir

Atvinna

ATVINNA

 

1.     Flokksstjórn í  vinnuskóla á Höfn og í Nesjum

Starfið felst í að vinna með unglingum, aðallega í umhirðu grænna svæða sveitarfélagsins. Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri.

Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um.

 

2.     Umsjón með sláttuhóp á Höfn og í Nesjum
Starfið felst í skipulagningu og stjórnun sláttuhóps í samstarfi við umsjónaraðila með vinnuskóla.  Krafist er stúdentsprófs og reynslu í hópstjórnun  sem og lipurð í mannlegum samskiptum, æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á vélum og útistörfum. Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um.

3.     Vinna við slátt

Umsækjendur þurfa að vera 16 ára eða eldri. Starfið felst í slætti á opnum svæðum, einkagörðum og almennri garðyrkju. Unnið er með m.a. með sláttuvélar og vélorf.
Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um.

 

 

Umsóknareyðublöð

Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu bæjarfélagsins og á http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/upplysingar/Umsoknir/nr/2915

einnig má skila inn rafrænt á netfangið haukuri@hornafjordur.is. Skila ber umsóknum fyrir 13. mars nk.   Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs í síma 470 8003

 

 

Höfn 23. febrúar 2012

Fjármála- og framkvæmdasvið

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica