Flutningur Gömlubúðar
Auglýsing um útboð vegna flutningur Gömlubúðar.
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið
Flutningur Gömlubúðar.
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.
Um er að ræða flutning Gömlubúðar.
Helstu stærðir eru
Húsið:
1, 2, 3 hæð c.a 100 m² hver
Jarðvinna:
Gröftur c.a 300 m³
Fleygun c.a 250 m³
Jarðfyllingar c.a 150 m³
Uppsteypa:
Mót sökkla og veggja c.a 460 m²
Steypa í sökkla og veggi c.a 50 m³
Steypa í botnplötu c.a 15 m³
Steypustyrktarjárn c.a 6.000 kg
Útboðið innfelur jarðvinnu, uppsteypu sökkuls og flutning og festingu á Gömlubúð.
Útboðsgögn má nálgast á heimasíðu Sveitarfélagsins Hornafjarðar eftir kl. 14:00 þann 2. mars 2012 á www.hornafjordur.is án endurgjalds eða á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar
gegn ljósritunarkostnaði, kr. 5000.
Senda skal tölvupóst á:
to: haukuri@hornafjordur.is ; teknik@hornafjordur.is
og óska eftir því að fá sent aðgangsorð og upplýsingar um aðgang að útboðsgögnum
á netinu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27 Höfn fyrir kl. 14:00 þann 19. mars 2012 þar sem þau verða opnuð.
Allar nánari upplýsingar um verkið gefur Haukur Ingi Einarsson, sími 470-8000/894-8413.
Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs





Skrifa athugasemd