Fréttir
Heppuskoli-fors
Heppuskoli-fors

27.01.2012 Fréttir

Útboð vegna endurbóta á skólahúsnæði

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið

Heppuskóli - endurbætur - innanhúss, Víkurbraut 9, Höfn.

Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.

 

Um er að ræða endurinnréttingu á Heppuskóla innanhúss.

Helstu stærðir eru ca. brúttó

1.      hæð           713 m2

2.      hæð           677 m2

 

Útboðið innfelur rif á milliveggjum, gluggum og hurðum í milliveggjum, loftum, gólfefnum og lögnum.

Smíði nýrra milliveggja, innihurða og –glugga, lofta, gólfefna og fastra innréttinga. Endurnýjun neysluvatnslagna og hita- og frárennslislagna eftir þörfum. Endurnýjun raflagna, tölvulagna og uppsetningu öryggiskerfa.  Endurnýjun loftræstilagna.

Verkinu er skipt niður á tvö ár, 15. maí – 15. ágúst árið 2012 og 15. maí – 15. ágúst 2013.

 

Útboðsgögn má nálgast á heimasíðu Sveitarfélagsins Hornafjarðar eftir kl. 14 þann 30. janúar 2012 á www.hornafjordur.is án endurgjalds eða á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar

gegn ljósritunarkostnaði, kr. 5000.

Hér er hægt að nálgast útboðsgögn hér

Tilboðum skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27 Höfn fyrir kl. 14:00 þann 27. febrúar 2012 er þau verða opnuð.

Allar nánari upplýsingar um verkið gefur Björn Imsland, sími 470-8000/894-8413.

 

 

Stefán Ólafsson

framkvstj. fræðslu- og félagssviðs  

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica