Atvinna - Móttökuritari
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir að ráða starfsmann á skrifstofu sveitarfélagsins frá og með 6. febrúar. Um er að ræða 100% staf í afgreiðslu.
Umsóknum skal skilað skriflega á skrifstofu Ráðhúss til og með 31. janúar , merkt „umsókn um starf móttökuritara“.
Helstu verkefni eru: Símavarsla, móttaka, skráning reikninga og umsjón með lánadrottnum sveitarfélagsins og önnur verkefni sem til falla.
Við mat á umsóknum skal litið til fyrri reynslu og menntunar sem nýtist í starfi.
Launakjör eru skv. kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar gefur Haukur I. Einarsson sími 470-8003, haukuri@hornafjordur.is





Skrifa athugasemd