Fréttir
Sindravellir
Sindravellir

20.01.2012 Fréttir

Knatthús Höfn – Tillaga að breyttu deiliskipulagi.

Á síðasta fundi Bæjarstjórnar Hornafjarðar var samþykkt breytingatillaga á deiliskipulaginu Knatthús Höfn.  Upphaflegt skipulag var samþykkt í nóvember 2008 og því um að ræða breytingu á staðfestu skipulagi. 

Umhverfis- og skipulagsnefnd fjallaði um breytingatillöguna á síðasta fundi sínum.  Vilji er til þess hjá Skinney Þinganes að byggja húsið á sinn kostnað en afhenda síðan sveitarfélaginu að gjöf að því loknu.   Til skoðunar er hús sem hefur lægri útveggi en skipulagið gerir ráð fyrir og að húsið verð með bogadregnum línum.  Til að hægt verði að nýta húsið til knattspyrnuiðkunar og til að mæta tæknilegum kröfum um burðarvirki er nauðsynlegt að gera breytingar á skipulaginu.  Breytingin er fólgin í hækkun á mænishæð hússins, úr 12 metrum í 13,7 metra og stækkun byggingarreits úr 4.000 m² í 4.250 m². 

 

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um skipulagið hér.     

Haukur Ingi Einarsson

Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica