Trúnaðarmaður fatlaðra (réttindagæslumaður) á Austurlandi hefur tekið til starfa
Trúnaðarmaður fatlaðra ( Réttindagæslumaður ) á Austurlandi Sigurlaug Gísladóttir hefur tekið til starfa og er með starfsaðstöðu á Egilsstöðum að Tjarnarbraut 39A en gengið inn við inngang B ( áður Starfsstöð Málefna fatlaðra). sigurlaug.gisladottir@rett.vel.is
Hægt er að panta viðtalstíma í síma 858-1964 alla virka daga á skrifstofutíma.
Trúnaðarmaður mun einnig vera til staðar víðsvegar um Austurland eftir þörfum og mun það verða auglýst þegar nær dregur.
Hlutverk trúnaðarmanns.
Trúnaðarmenn skulu fylgjast með högum fatlaðs fólks og vera því innan handar við réttindagæslu hvers konar, hvort sem það er vegna meðferðar einkafjármuna þess, þjónustu sem það á rétt á eða varðandi önnur persónuleg réttindi eða einkamál þess.
Búi hinn fatlaði einstaklingur á heimili fyrir fatlað fólk skal forstöðumaður viðkomandi heimilis veita trúnaðarmanni þær upplýsingar sem honum eru nauðsynlegar vegna starfs síns.
Þegar um er að ræða upplýsingar sem varða persónuleg atriði eða upplýsingar um einkafjármuni hins fatlaða einstaklings skal leita eftir samþykki hans eða þess sem heimild hefur til þess að koma fram fyrir hans hönd.
Trúnaðarmaður skal vera sýnilegur í störfum sínum, halda reglulega fundi með fötluðu fólki á sínu svæði og standa fyrir fræðslu fyrir fatlaða einstaklinga og þá sem veita þeim þjónustu.




Skrifa athugasemd