Fréttir
Dagur íslenskrar tungu 2007
Dagur íslenskrar tungu 2007
(úr myndasafni)

01.06.2011 Fréttir

Sérstakakur rýnihópur skipaður til að fara yfir leikskólamál

Á fundi skólanefndar þann 23. mars 2011 var samþykkt að skipa sérstakan rýnihóp til að fara yfir leikskólamál og gera tillögur um málaflokkinn. 

Þessi tillaga kom í kjölfar skýrslu sem kynnt var í mars um þróun og viðhorf í leikskólamálum á Hornafirði.

Eftir umræður í bæjarráði þann 28. mars var ákveðið að í hópnum sætu þrír fulltrúar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, þ.e. einn frá hverju framboði, einn leikskólastjóri, einn starfsmaður frá hvorum leikskóla og tveir fulltrúar foreldra, einn frá hvorum leikskóla.

Í niðurstöðum skýrslunnar segir „að forgangsatriði sé að auka leikskólapláss sem samsvarar einni leikskóladeild. Næsta skólaár verður bætt við einni deild á Krakkakot í samvinnu við leikskólastjóra og starfsfólk en samtímis unnið að framtíðarlausn með nýbyggingu.

Koma þurfi til móts við börn og foreldar með aukinni og sýnilegri samvinnu/samkennslu elstu árganga milli skólanna. 

Framtíðarfyrirkomulag leikskólamála mun ráða miklu um fyrirkomulag stjórnunar skólanna og telur rýnihópurinn ekki ástæðu til að vera með tillögur um þann þátt.“

Skýrslan (pdf)


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica