Fréttir
Gos í Grímsvötnum
Gos í Grímsvötnum
Séð frá Júllatúni (Mynd:Óðinn Eym)

24.05.2011 Fréttir

Frá almannvarnarnefnd Hornafjarðar

Almannavarnarnefnd Hornafjarðar telur ástæðu að brýna fyrir fólki að fara ekki um svæðið á meðan ennþá er hætta á öskufalli nema að brýna nauðsyn beri til. 

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands hefur kraftur gossins dvínað síðan það hófst en ennþá er öflugt gos í gangi.  Jafnframt er nokkur óvissa er um hvernig komi til með að þróast á næstu dögum.

Grannt er fylgst með þróuninni á vegum aðgerðarstjórnar svæðisins sem er í viðbragðsstöðu ásamt björgunarsveit og öðrum aðilum til að bregðast við ef á þarf að halda.

Búið er að opna þjónustumiðstöð í Öræfum sem verður opinn frá 15-17 á hverjum degi.  Þar geta íbúar fengið alla þá hjálp sem þá vanhagar um á meðan gosinu stendur.  Á staðnum eru nauðsynleg gögn til að takast á við öskuna sem hefur fallið á svæðinu.

Á fimmtudaginn kemur sjö manna teymi frá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra til fundar með almannavarnarnefnd og þeim sem stýrt hafi aðgerðum.  Þá verður meðal annars rætt um hvernig best sé að glíma við afleiðingar gossins og öskufallsins, meðal annars hreinsun svæða og önnur nauðsynleg verkefni. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica