Gunnar Ingi Valgeirsson ráðinn forstöðumaður íþróttamannvirkja
Gunnar Ingi Valgeirsson tekur við af Hauki Helga Þorvaldssyni sem forstöðumaður íþróttamannvirkja í sumar. Gunnar Ingi á langan feril að baki í störfum fyrir íþróttahreyfinguna á staðnum, sem lögreglumaður og eigandi öryggisþjónustufyrirtækis.
Hann var valinn úr hópi 14 umsækjanda. Af þeim voru fimm boðaðir í viðtöl og leitað umsagna um þá.
Verkefni forstöðumanns eru að veita íþróttamannvirkjum forstöðu, halda utan um rekstur og mannahald í íþróttamannvirkjum, bera ábyrgð á íþróttasvæðum í sveitarfélaginu, að vera tengiliður sveitarfélagsins við íþróttahreyfinguna og hafa yfirumsjón með stefnumótun í æskulýðs- og tómstundamálum. Undanfarin ár hefur verið mikil uppbygging á íþróttamannvirkjum sem mikilvægt er að hlúa vel að. Í umræðunni er að ljúka þurfi við byggingu á milli sundlaugar og íþróttahúss.
Um leið og Hauki Helga er þakkað fyrir hans framlag til íþrótta- og æskulýðsmála á undaförnum árum er Gunnar Ingi boðinn velkominn til starfa.
Þeir sem sóttu um eru eftirfarandi
| Árni Rúnar Þorvaldsson, kennari |
| Bergþóra Ósk Guðmundsdóttir, afgreiðslumaður |
| Björn Helgason, verkfræðingur |
| Guðbjörg Ómarsdóttir, starfsmaður Afls |
| Gunnar Ingi Valgeirsson, lögreglumaður |
| Herdís I. Waage, sundlaugarstarfsmaður |
| Inga Rún Guðjónsdóttir, sundlaugarstarfsmaður |
| Ingvar Ágústsson, verkamaður |
| Jakob Guðlaugsson, sundlaugarvörður |
| Kristinn Þór Guðlaugsson, kennari |
| Lars Jóhann Andrésson, sundlaugarvörður |
| Páll Róbert Matthíasson, múrarameistari |
| Sigrún Kapitóla Guðrúnardóttir, framkvæmdastjóri |
| Valdemar Einarsson, framkvæmdastjóri Sindra |




Skrifa athugasemd