11 þúsund gestir í Sundlaug Hafnar
Það sem af er árinu hafa um 11.000 gestir heimsótt sundlaugina sem eru nokkuð færri gestir en á sama tíma í fyrra.
70 þúsund gestir komu í heimsókn allt árið 2010 og eru þá með taldir nemendur grunnskólans í skólasundi og iðkendur sundæfinga hjá Sunddeild Sindra. Langflestir gestir koma yfir sumartímann bæði innlendir og erlendir. Heimafólk sækir mest sundlaugina frá september til maíloka. Sundlaugar njóta mikilla vinsælda hjá ferðafólki og eru nær ómissandi þáttur í ferðalaginu. Vaxandi er fjöldi erlendra ferðamanna víða að úr heiminum með æði mismunandi sundmenningu. Starfsemin í sundlauginni er fjölbreytt, skólasund alla virka daga, sundæfingar, sundnámskeið bæði fyrir börn og fullorðna og sundleikfimi eldri borgara. Þá á hver sundlaug sína föstu gesti sem koma á ákveðnum tímum sér til heilsubótar og hressingar.
Í vetur var samþykkt af bæjarstjórn að yngri en 10 ára fengju frítt í sund. Kom þessi ákvörðun í kjölfar þess að nýjar reglur um öryggi á sundsstöðum kveða á um að börnum yngri en 10 ára er óheimill aðgangur að sund- eða baðstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri. Ekki skal leyfa viðkomandi einstaklingi að hafa fleiri en tvö börn með sér, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann barna. Finnst rétt er að benda foreldrum og forráðamönnum barna á að fylgjast vel með sundfærni barna sinna er farið er í laug og nota kútana ef minnsti vafi leikur á að sundfærni barnanna sé ábótavant. Rétt þykir að benda á að þeir sem eru með annarra börn í gæslu teljast ekki forráðamenn. Sundlaugargestir geta valið mismunandi greiðslumáta í sund. Boðið er upp á árs- og 15 miða kort á hagstæðum verðum . Ég vil hvetja íbúa Hornafjarðar og aðkomna gesti til að sækja sundlaugina því þar er að finna holla og góða afþreyingu, s.s.tvo heita potta og er annar þeirra með nuddi, grunna vaðlaug en hún er sérlega vinsæl af yngri kynslóðinni og fjölskyldufólki, gufubað þar sem svitaholurnar opnast vel, rennibrautir sem heilla yngri sem eldri og síðast en ekki síst sjálfa sundlaugina þar sem hægt er að fá sér góðan sundsprett.
Endilega setjið heimsókn í sundlaugina á heilsubótararlistann, hún klikkar ekki.
Haukur H. Þorvaldsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Hornafjarðar





Skrifa athugasemd