ÚTBOÐ - HEPPUSKÓLI ENDURBÆTUR UTANHÚSS
Útboðið innfelur fullnaðarfrágang utanhúss en innanhúss er bráðabirgðafrágangur nýrra
glugga/hurða við núverandi klæðningar. Í nýju anddyri er fullnaðarfrágangur utan- og
innanhúss.
Verkið hefst strax og skóla lýkur og skal að fullu lokið eigi síðar en 24. ágúst 2011.
Útboðsgögn má nálgast á vef sveitarfélagsins á slóðinni http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/utbod frá og með mánudeginum 18. apríl. Kjósi bjóðendur að sækja útprentuð útboðsgögn þá verða þau seld hjá Sveitarfélaginu Hornafirði Hafnarbraut 27 á Höfn frá og með 18. apríl. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Tilboðum skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27 Höfn fyrir kl. 14:00 þann 16. maí 2011 þar sem þau verða opnuð 14:05 þann sama dag. Allar nánari upplýsingar um verkið gefur Björn Imsland, sími 470-8000/894-8413.
Framkvæmda- og fjármálasvið Seitarfélagsins Hornafjarðar





Skrifa athugasemd