Fréttir
Loftmynd af Höfn
Loftmynd af Höfn
Höfn

08.04.2011 Fréttir

Sveitarfélagið Hornafjörður rekið með rekstrarafgangi

Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2010 var lagður fram á bæjarstjórnar fundi þann 7. apríl.  Helstu niðurstöður hans er að afkoma samantekins A og B hluta er jákvæð um 144 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir 97 milljóna króna afgangi.  Veltufé frá rekstri nam 261 milljónum króna sem er 26 milljón króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.  Launakostnaður jókst frá fyrra ári sökum hækkunar á tryggingargjaldi og hækkunar á lífeyrisskuldbindingu. 

Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.319 milljónum króna í árslok 2010 og lækkuðu um 127 milljónir króna á árinu.  Eigið fé A og B hluta nam í árslok 2.163 milljónum króna í árslok og eiginfjárhlutfall 62,1%.

Í skýrslu endurskoðenda kemur fram að samkvæmt samþykktum áætlunum getur sveitarfélagið staðið við áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármögnun fyrir árin 2011-2014 án þess að til lántöku komi á næstu árum.  Það er til vitnis um fjárhagslegan styrk þess.

Hér er árskýrslan á pdf formi og sundurliðunarbók (pdf).

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica