Fréttir
Jöklasýn
Jöklasýn
Mynd: Óðinn Eymundsson

07.04.2011 Fréttir

Sumarið á næsta leiti

Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að umhverfi sveitarfélagsins sé snyrtilegt.  Að því tilefni er blásið til sóknar í fegrun umhverfis dagana 8.  – 11. apríl.  Nefndin hefur fengið skóla, starfsmenn sveitarfélagsins og félagasamtök í lið með sér þessa daga þar sem tekið verður til á ýmsum stöðum í sveitarfélaginu.  Því verður gámaport Áhaldahússins á Höfn opið lengur dagana 8. og 9. apríl eða frá 13:00 – 20:00 og einnig verður opið sunnudaginn 10. apríl frá kl 10:00 – 18:00.  Íbúum á Höfn og í Nesjahverfi er boðið upp á að koma garðaúrgangi út fyrir lóðamörk sín á sunnudaginn en Ungmennafélagið Sindri og Ungmennafélagið Máni sjá um að hirða hann og koma á réttan stað á mánudaginn.  Önnur verkefni sem félagasamtök taka að sér þessa daga er að koma timburkurli fyrir í beðum sveitarfélagsins, bera í leiktæki á opnum svæðum ef veður leyfir, taka til í kringum Mánagarð o.fl í þeim dúr.  Þeir íbúar sem vilja fara með garðaúrgang sjálf er bent á að losa hann við Fjárhúsavík og muna eftir því að taka ruslapokana með sér heim aftur.   Stofnanir sveitarfélagsins munu gera snyrtilegt umhverfis stofnanir sínar föstudaginn 8. Apríl.  Í undirbúningi er einnig hreinsun til sveita þar sem lögbýliseigendum er gefinn kostur á að losa sig við brotajárn dagana 4. – 8. apríl.  Sá undirbúningur hefur gengið vel og eru yfir 15 bæir búnir að hafa samband við starfsmenn sveitarfélagsins um að hirða stórt og smátt brotajárn.  Þar má nefna ónýta bíla, dráttarvélar og önnur landbúnaðartæki.  Í dag (fimmtudag) og á morgun (föstudag)  verða verktakar á ferðinni í sveitunum að safna saman brotajárninu og koma því fyrir á viðurkenndum söfnunarstað. 

Stöndum nú saman og tökum til hendinni þessa daga, gerum snyrtilegt í kringum okkur og verum samtaka í því að halda Sveitarfélagið Hornafirði snyrtilegu.

 

Haukur Ingi Einarsson

Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica