Nýjar reglur fyrir leikskóla og umsóknir um leikskólaplass
Þann 23. mars sl. voru samþykktar í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd sveitarfélagsins nýjar reglur um leikskóla og staðfestar í bæjarráði 28. mars. Gilda hinar nýju reglur frá 1. apríl. Þar er m.a. kveðið á um breytta meðferð umsókna um leikskólapláss, sbr. eftirfarandi: „Öllum umsóknum um leikskólapláss skal skilað til skólaskrifstofu sveitarfélagsins. Fram komi á umsóknarblaði um hvorn leikskólanna er sótt og hvert sé þá annað val umsækjanda.“ Umsóknareyðublað er á heimasíðu sveitarfélagsins, sjá
http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/upplysingar/Umsoknir/nr/3121
Fleiri breytingar hafa verið gerðar á reglunum sem einnig eru á heimasíðunni, sjá http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/stjornsyslan/nr/2867
Stefán Ólafsson
framkvstj. fræðslu- og félagssviðs




Skrifa athugasemd