Fréttir
Dagur íslenskrar tungu 2007
Úr myndasafni 
Dagur íslenskrar tungu á leikskólanum

29.03.2011 Fréttir

Leikskólamál - viðhorf og þróun í sveitarfélaginu

Nokkur umræða hefur verið um leikskólamál á Hornafirði undanfarið.  Segja má að umræðan sé tvískipt.  Annars vegar hefur fólk rætt um biðlista sem lengst hafa síðustu mánuði og hvernig bregðast megi við þeim og hins vegar um skipulag leikskólamála. 

Bæjarstjórn og skólanefnd hafa unnið að því að greina þessi mál samtímis en leggja áherslu á að þau eru lítið sem ekkert samtengd.

Í mars lauk fræðslu- og félagssviðs við úttekt á leikskólamálum.  Þar var farið yfir þróun leikskólanna er varðar mannauð, vistunartíma, rekstur, leikskólagjöld og fleira.  Þá var gerð könnun á viðhorfi starfsfólks leikskólanna og foreldra leikskólabarna auk þess sem viðtöl voru tekin við leikskólastjórana.  Að endingu var gerð fjárhagsleg úttekt á mismunandi stjórnunarformum á leikskólunum.  Helstu niðurstöður úr viðhorfskönnun voru að:

  • Að traust ríkir á milli stjórnenda og starfsmanna.
  • Að traust ríkir á milli starfsmanna og foreldra barna.
  • Samstarf starfsmanna er almennt séð gott.
  • Að upplýsingaflæði innan leikskólans er almennt séð gott.
  • Að starfsfólk leikskólanna upplifir bæði líkamlegt og andlegt álag.
  • Að hluti starfsfólk telur aðstöðu á leikskólanum ábótavant.
  • Að stór hluti foreldra er ánægður með leikskóla barnsins.
  • Foreldrar barna segja að börnum líði vel á leikskólanum.

Í viðhorskönnun kom jafnframt fram að skiptar skoðanir eru um skipan leikskólamála.  Þannig kemur fram í viðhorskönnuninni að:

  • 52% starfsmanna beggja leikskólanna vilja búa áfram við núverandi skipulag, 40% vilja hverfa aftur til fyrra skipulags og 8% vilja sameinaðan leikskóla sem fyrsta valkost.  Viðhorf eru þó ólík eftir skólum.
  • 40,7% foreldra vilja búa áfram við ríkjandi skipulag, 32,3% vilja hverfa aftur til fyrra skipulags og 27,1% vilja sameiginlegan leikskóla sem fyrsta valkost.

Úttektin leiðir ekki til einnar augljósrar niðurstöðu um framtíð í skipulagi leikskólamála.  Skólanefnd ákvað að leggjast frekar yfir skýrsluna og setja á fót rýnihóp til að greina málin betur.  Rýnihópurinn samanstendur af fulltrúum frá hverju framboði sem fulltrúa á í bæjarstjórn, fulltrúum starfsmanna og stjórnenda á leikskólum og foreldra leikskólabarna. 

 

Það er vilji sveitarfélagsins Hornafjarðar að nýta úttektina á jákvæðan og uppbyggilegan hátt fyrir leikskólastarf í sveitarfélaginu.   Skólanefnd mun boða til opins fundar um skólamál með það fyrir að gefa fólki tækifæri til að fjalla um efni skýrslunnar og annað er varðar skólamál í héraðinu.

Leikskólaskýrslan er aðgengileg hér (pdf).

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica