Fréttir
Mynd i sveit
Grenndarstöð við Hrollaugsstaði
Mynd: BÞI

23.03.2011 Fréttir

Breytt fyrirkomulag sorpmála í Öræfum

 

Undanfarnar vikur hefur farið fram vinna við að breyta sorpfyrirkomulagi í Öræfum þar sem loka á sorpbrennslustöðinni Brennu Flosa.  Ástæða lokunar Brennu Flosa eru þríþættar. 

  • Mikill kostnaður fylgi sorpbrennslu þar sem rekstrarkostnaður stöðvarinnar er hár samanborið við aðra meðhöndlun á úrgangi.   
  • Lokun sundlaugar í Svínafelli hefur einnig áhrif, þar sem sundlaugin keypti orkuna sem sorpbrennslan gaf frá sér.
  • Mengunarmælingar frá stöðinni voru yfir viðmiðunarmörkum reglugerðar og kostnaður við að koma upp fullkomnum hreinsibúnaði var það mikill að ekki voru taldar ástæður til að fara út í þá fjárfestingu á meðan aðrir möguleikar voru til staðar til að leysa sorpmál í Öræfum.

Mengunarmælingar

Í janúar s.l fóru fram mengunarmælingar á útblæstri sorpbrennslustöðvarinnar fram og niðurstöðurnar sýndu að mengun stöðvarinnar voru yfir viðmiðunarmörkum reglugerðar um sorpbrennslustöðvar.

 

Niðurstöðurnar má kynna sér hér .

 

Íbúafundur

Fundur var haldin í Öræfum um breytt fyrirkomulag sorpmála.  Góð mæting var á fundinn eins og venjan er í Öræfum.  Neðangreindir punktar voru til umræðu á fundinum og voru margar spurningar bornar fram eins og eðlilegt er þegar svo róttækar breytingar eiga sér stað. 

·         Hverju lögheimili í Öræfum verður úthlutað sorpíláti til umráða líkt og annarsstaðar í sveitarfélaginu.   Hægt er að velja milli tveggja mismunandi íláta, annarsvegar 240 L tunnu og hinsvegar 120 L tunnu ( 240 L tunna kostar 14.000.- kr. á ári en 120 L tunna kostar 5.000.- kr. á ári ).

·         Flokkunarstöðvum sem bjóða upp á losun á bylgjupappír, dagblöðum og tímaritum, sléttum pappír, mjúku plasti og smáu brotajárni verður komið upp.

·         Gámi fyrir lífrænan úrgang svo sem dýrahræ verður komið upp .

·         Rúllubaggaplast verður sótt heim á bæi í samræmi við áætlun og samstarf við bændur.

·         Spilliefni verða sótt í samræmi við áætlun.

·         Flokkanlegur úrgangur verður sóttur til fyrirtækja í hvert sinn sem flokkunarstöðvar eru losaðar, rekstraraðilar sjá um að verða sér út um ílát sem henta undir flokkana.

·         Áætlun verður gerð um timbur- og brotajárnsgám, þar sem hægt er að losna við stærri hluti svo sem bílhræ og eldhúsinnréttingar.

 

Nú vinnur Sveitarfélagið að því að koma nýjum tunnum til íbúa í Öræfum ásamt því að finna staðsetningar grenndarstöðva í samvinnu við íbúa í Öræfum, þar sem stefnt er að því að loka brennslunni í apríl mánuði.

Mælingar á búafurðum í Svínafelli hafa verið framkvæmdar og hafa þær niðurstöður staðist fullkomlega gæðakröfur og eru í fullu samræmi við gæði sömu búvara og annarsstaðar þekkist á Íslandi.  Umhverfisstofnun mun í samvinnu við Sveitarfélagið Hornafjörð á vormánuðum láta framkvæma mælingar á jarðvegi í námunda við sorpbrennslustöðina.  Þær mælingar verða gerðar opinberar um leið og þær liggja fyrir.

 

Upplýsingar um málefni sorpbrennslustöðva og reglugerðir um þær má finna á vef Umhverfisstofnunnar www.ust.is

 

Haukur Ingi Einarsson

Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica