ÚTBOÐ - FRÁVEITA VIÐ LEIRUSVÆÐI
Verkið felst í því að framlengja frárennslislagnir frá núverandi rotþró á Leirusvæði að Lyngey ásamt því að framlengja lögn, sem liggur frá sundlaug Hafnar að Hrossabithaga, út fyrir núverandi grjótgarð. Inn í tilboði er m.a. gröftur fyrir lögnum þ.e, lagning lagnanna, söndun í kringum þær, fylla í lagnaskurð og jafna út fyllingu skv. teikningum, í samráði við verkkaupa og eftirlitsmann og einnig samkvæmt verklýsingum þessum og öðrum þeim gögnum sem vísað er til. Einnig er í tilboðinu að grjótverja enda lagnar frá sundlaug og fylla yfir útrás fráveitunnar fyrir vestan Lyngey.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 4. apríl 2011
Útboðsgögn má nálgast á vef sveitarfélagsins á slóðinni http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/utbod frá og með miðvikudeginum 23. febrúar. Kjósi bjóðendur að sækja útprentuð útboðsgögn þá verða þau seld hjá Sveitarfélaginu Hornafirði Hafnarbraut 27 á Höfn frá og með 24. febrúar. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað kl. 14:00 föstudaginn 04. mars 2011 og verða þau opnuð þar kl. 14:05 þann sama dag.
Fjármála- og framkvæmdasvið Hornafjarðar





Skrifa athugasemd