Fréttir
Útsýni 4
Horft að Höfn frá Miðfellstind
Mynd: HIE

17.01.2011 Fréttir

ÚTBOÐ - RÁÐHÚS/SVAVARSAFN

Sveitarfélagsið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í  verkið RÁÐHÚS/SVAVARSAFN:    

 

Verkið felst í að endurinnréttra fyrrverandi lögreglu- og slökkvistöð að Hafnarbraut 27 og koma þar upp sýningarsölum og listaverkageymslum   Jafnframt verður almóttaka hússins færð á jarðhæð með viðeigandi innréttingum og breytingum.  Þá fylgir verkinu utanhúsbreytingar, klæðning lágbygginga með standandi timburklæðningu á ál undirkerfi, nýir gluggar og hurðir.

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en  27. maí 2011

Bjóða má í einn aðskilin verkþátt á tilboðsblaði samanber eftirfarandi eða allt verkið kjósi bjóðandi það.

Tilboðið sundurliðast  þannig.

a)      Loftræsing.   Liður 6. Loftræstikerfi.

b)      Hitalagnir og ofnar.  Liður 3. Lagnir.

c)      Raflagnir.  Liður 4. Rafkerfi   

d)     Trésmíði og múrverk.  Liður 5. Frágangur Innanhús að undanskildu Málun (5.4) og liður 7. frágangur utanhúss.

e)      Málun.  Liður 5 frágangur Innanhúss- Málun(5.4)

 

Útboðsgögn má nálgast á vef sveitarfélagsins á slóðinni http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/utbod frá og með mánudeginum 17. janúar.  Kjósi bjóðendur að sækja útprentuð útboðsgögn þá verða þau seld hjá Sveitarfélaginu Hornafirði Hafnarbraut 27 á Höfn frá og með þriðjudeginum  18. janúar.  Verð útboðsgagna er 10.000 kr.

 

Skila skal tilboðum á sama stað kl. 14:00  mánudaginn 31. janúar og verða þau opnuð þar kl. 14:05 þann sama dag.

 

Framkvæmda- og fjármálasvið Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica