Fréttir
Dreymir ekki flesta um að búa á svona stað!
Dreymir ekki flesta um að búa á svona stað!

08.01.2011 Fréttir

Umhverfismál

 

Sorpgjöld

 

Sorphirðudagatal hefur verið gefið út fyrir árið 2011 af Sveitarfélaginu Hornafirði.  Dagatalið er gefið út rafrænt og má finna á heimasíðu sveitarfélagsins http://www.hornafjordur.is/ .   Þar má einnig finna almennar upplýsingar um sorpmál, hvenær sorp er hirt, staðsetning grenndarstöðva, opnunartími gámaports og hvar eigi að koma á framfæri ábendingum um það sem betur má fara.

Aukin endurvinnsla getur skilað fjárhagslegum ávinningi fyrir íbúa.  Í boði er að velja á milli tvennskonar heimilisíláta undir sorp og greiða mismunandi gjald eftir stærð og fjölda.  Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð í Ráðhúsi eða á heimasíðu sveitarfélagsins.  Valið stendur á milli 120 lítra tunnu og greiða af henni 5.000.- kr. og 240 lítra tunnu sem kostar 14.000.- kr.  Heimili geta óskað eftir breytingu á ílátum fram til 15. febrúar n.k og þannig haft áhrif á sorpgjöld sín.   Öll heimili greiða kr 10.000.- fyrir sorphirðu.   Í heild eru sorpgjöld í Sveitarfélaginu Hornafirði frá 15.000.- kr. og upp úr eftir því hversu mörg ílát heimili velja sér.  Algengasta gjaldið er 24.000.- fyrir hvert heimili. 

Trjákurlari

Nýlega festi Sveitarfélagið kaup á trjákurlara sem nú getur í fyrsta skipti kurlað niður timbur sem fellur til ef það er án nagla, steypu o.s.frv.  Kurlið mun nýtast vel á opnum svæðum og við stofnanir sveitarfélagsins og til göngustígagerðar.

 

Fjármála- og framkvæmdasvið

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica