Hækkun á aldurstakmarki barna í sund
Ný reglugerð tók gildi um áramót
Sundlaug Hafnar - foreldrar/forráðamenn athugið !!!
| Hækkun á aldurstakmarki barna í sund / ný reglugerð tók gildi um áramót |
|
Samkvæmt nýrri reglugerð um almenna sund- og baðstaði á Íslandi munu aldursmörk taka breytingum og hækkuðu nú um áramótin þannig að frá og með 1. janúar 2011 eru börnum yngri en 10 ára óheimill aðgangur að sund- og baðstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri. Foreldrar/forráðamenn barna eru hér með vinsamlega beðnir um að virða aldursmörk þessi. Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Hornafjarðar |




Skrifa athugasemd