Fréttir
Austurfjörur yfir vetrartímann

20.12.2010 Fréttir

Fjárhagsáætlun Hornafjarðar fyrir 2011 ásamt þriggja ára áætlun

Fréttatilkynning vegna fjárhagsáætlunar Hornafjarðar fyrir árið 2011 ásamt þriggja ára áætlun 2012-2014

Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011 og gerð þriggja ára áætlunar fyrir árin 2012 – 2014 var unnið út frá drögum að reglum um fjármál sveitarfélaga.  Reglurnar eru tvær, annars vegar skuldaregla sem segir að skuldir sveitarfélaga megi ekki vera hærri en 150% af tekjum þeirra og hins vegar að sveitarfélögum er gert að skila afgangi á hverju þriggja ára tímabili.  Samkvæmt framlagðri tillögu mun Sveitarfélagið Hornafjörður uppfylla bæði þessi skilyrði í reglum um fjármál sveitarfélaga

 

Helstu niðurstöður ársins 2011 eru eftirfarandi

  A Höfnin Veitur Íbúðir A-B
Rekstrarniðurstaða (m.kr.) 89.061 43.422 3.502 22.350 133.000
Skuldir í hlutfalli af tekjum 70,6%       82%
Framkvæmdir (m.kr.) 150 20 40 0 210
Handbært fé frá rekstri (m.kr.) 166.364 55.269 3.502 9.260 251
Handbært fé í árslok (m.kr.) 148.616 30.194 0 0 179
Afborganir langtímal. (m.kr.) 104.634 7.165 0 0 121
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.) 0 0 0 0 0

 

Helstu niðurstöður áætlunarinnar árin 2011-2014 eru eftirfarandi. Tölurnar eru fyrir A og B hluta

 

 

  2012 2013 2014  
Rekstrarniðurstaða (m.kr.) 135 134 131  
Skuldir í hlutfalli af tekjum 78% 73% 69%  
Framkvæmdir (m.kr.) 190 190 190  
Handbært fé frá rekstri (m.kr.) 256 259 260  
Handbært fé í árslok (m.kr.) 143 163 179  
Afborganir langtímal. (m.kr.) 102 98 104  
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.)  0  50  50  
 


 

Álagningarreglur og gjaldskrár verða óbreyttar á milli ára með þeim undantekningum að gjaldskrár vegna fæðis í leik- og grunnskólum hækka og sorpurðunargjald hækkar einnig.

Gjaldskrár vegna fæðiskostnaðar í leik- og grunnskóla hækka vegna hærra hráefnisverðs.  Tillagan gerir ráð fyrir 5% hækkun á fæði í leikskólum og hækkun úr 250 krónum í 260 krónum fyrir hádegismat í Grunnskóla Hornafjarðar.  Jafnframt hækkar gjald fyrir fæði í lengdri viðveru þannig að það standi undir innkaupum á hráefni.   Með þessu hækka greiðslur foreldra vegna fæðis barna þeirra í leikskólum um rúmlega fjögur þúsund krónur á ári og í grunnskólum um tæplega tvö þúsund krónur á ári.  Sorpurðunargjald hækkar um úr 10.000 krónum í 14.000 fyrir heila tunna en íbúum verður jafnframt boðið upp á að fá hálfa tunnu og greiða urðunargjald upp á 5.000 krónur.  Þetta á að virka sem hvatning til íbúa um frekari flokkun sorps.

 

Helstu breytingar á milli endurskoðaðrar áætlunar 2010 og áætlunar 2011:

·         Skatttekjur                                                       -3,6%

·         Félagsþjónusta breytist                                      0,2%

·         Fræðslu- og uppeldismál                                  -3,4%

·         Menningarmál                                                  -2,7%

·         Æskulýðs- og íþróttamál                                   0,1%

·         Sameiginlegur kostnaður lækka                       -6,2%

 

Fjárhagsáætlun verður kynnt í hádeginu þann 28. desember á Kaffihorninu og tekin til síðari umræðu í bæjarstjórn þann 13. janúar nk..  Á milli umræðna verður meðal annars farið yfir forgangsröðun framkvæmda og viðhalds fyrir sveitarfélagið.

 

Sjá nánar "hér"

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica