Tillaga að breytingu á deiliskipulag ( DEILISKIPULAG Á MIÐBÆJARSVÆÐI – REITUR A )
Fyrirhugað er að breyta deiliskipulagi við miðsvæði á Höfn. Markmið með breytingunni er að móta ramma um byggð sem styrkir götumynd Hafnarbrautar og heildarbrag miðsvæðis á Höfn – og fyllir í hálfkláraða götumyndir, og verður aðlaðandi umhverfi. Skipulagningu er ætlað að stuðla að uppbyggingu atvinnu- og þjónustuhúsnæðis í miðbæ Hafnar. Áhersla er lögð á að nýbyggingar, og viðbyggingar og breytingar á eldri húsum lagi sig að staðháttum og byggðinni sem fyrir er. Einnig að framkvæmdir geti farið fram í áföngum eftir þörfum lóðarhafa, og smám saman fyllt í þá heildarmynd sem skipulagið stefnir að. Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til og með föstudeginum 14. janúar 2011. Skila skal skriflegum athugasemdum til umhverfis- og skipulagsnefndar Hornafjarðar á bæjarskrifstofu Hornafjarðar. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast henni samþykkir.
http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/upplysingar/skipulag/ikynningu/
Skipulagsbreyting uppdráttur og greinargerð ( pdf )




Skrifa athugasemd