Kveikt á jólatré Hornafjarðar 28. nóvember
Kveikt verður á jólatré Hornafjarðar á sunnudaginn 28. nóvember kl. 17:00 við hátíðlega athöfn.
· Lúðrasveit Hornafjarðar leikur jólalög, ávarp og hugvekja, Karlakórinn Jökull syngur jólalög og
börnin úr leikskólunum bregða á leik í jólaskapi.
· Nemandi í Grunnskóla Hornafjarðar tendrar ljósin.
· Von er á góðum gestum með rauðar skotthúfur í heimsókn og er ekki að efa að það verður mikið fjör.
Jólatréð verður staðsett við sundlaugina og er fólk hvatt til að fjölmenna við athöfnina.
Óskað er eftir að bílum verði ekki lagt á bílastæði sundlaugar meðan á athöfninni stendur.
Allir hjartanlega velkomnir !
Sveitarfélagið Hornafjörður




Skrifa athugasemd