Fréttir
Ró og friður
Ró og friður
DescriptionShort (úr myndasafni)

12.11.2003 Fréttir

Byggðakvóti

Sveitarfélagið Hornafjörðu fékk úthlutað í sinn hlut 26, 3 þorsígildistonn í úthlutun á byggðakvóta. Kvótanum er úthlutað af Sjávarútvegsráðuneytinu og er honum ætlað að styrkja þau byggðarlög sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Stærsta úthlutun byggðakvóta var til Ísafjarðarbæjar, 118,9 þorsígildistonn. Sveitarfélagið Hornafjörður mun ekki gera tillögur til ráðuneytisins um skiptingu byggðakvótans og mun ráðuneytið því úthluta kvótanum eins og reglugerðir kveða á um. Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu mun skipting kvótans liggja fyrir innan skamms.

Í reglugerðinni um byggðakvóta segir m.a. að ráðuneytið skuli skipta þeim veiðiheimildum sem koma í hlut hvers sveitarfélags milli einstakra fiskibáta sem skráðir eru frá viðkomandi sveitarfélagi 1. september 2003. Skal úthluta til einstakra aflamarksskipa og krókaaflamarksbáta hlutfallslega miðað við heildaraflamark þeirra í botnfiski, í þorsksígildum reiknað, miðað við úthlutun til þeirra á grundvelli aflahlutdeilda í upphafi fiskveiðiárs 2003/2004.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica