Bætt umferðaröryggi við Víkurbraut
Unnið er að uppbyggingu hraðahindrunar á Víkurbraut og því verður Víkurbraut lokað frá horni Heppuskóla í suðri og við gatnamót Fákaleiru. Þeir sem eiga erindi inn á íbúðarsvæði við Leirusvæði og athafnasvæði við Höfnina er bent á tvær hjáleiðir inn á svæðin, stærri bílum er bent á að aka hjáleið milli Hrossabitahaga og Fiskhóls, smærri bílum er bent á að aka Hafnarbraut að athafnasvæði. Verkið er unnið fyrir Vegagerðina.
Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmda- og fjármálasvið





Skrifa athugasemd