Útboð á Hreinsivirki við Leiðarhöfða
Verkið felst í því að koma fyrir og ganga frá hreinsivirki/þróarkassa við Leiðarhöfða á Höfn í Hornafirði samkvæmt verklýsingum þessum og öðrum þeim gögnum sem vísað er til. Um er að ræða að grafa og fleyga fyrir hreinsivirki/þróarkassa sem er 6,5 metrar á lengd, 2,16 á breidd og 2,4 m á hæð, steypa þrifalag og botnplötu undir hreinsivirkið/þróarkassann áður en honum er komið fyrir ofan á henni. Síðan eru veggir steyptir utan um hreinsivirkið/þróarkassan og að lokum steypt plata ofan á hann.
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. janúar 2011
Útboðsgögn má nálgast á vef sveitarfélagsins á slóðinni http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/utbod frá og með fimmtudeginum 7. október. Kjósi bjóðendur að sækja útprentuð útboðsgögn þá verða þau seld hjá Sveitarfélaginu Hornafirði Hafnarbraut 27 á Höfn frá og með fimmtudeginum 7. október. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað kl. 14:00 fimmtudaginn 18. október 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:05 þann sama dag





Skrifa athugasemd