Fréttir
Útsýni 2
Sólstafir yfir Svínafelli
Mynd: HIE

06.10.2010 Fréttir

Almenn umhirða í Sveitarfélaginu Hornafirði

Nýverið staðfesti umhverfisráðherra samþykkt sveitarfélagsins Hornafjarðar er varðar umgengni og þrifnað utanhúss.  Samþykktin snýr að almennum reglum um hvernig haga beri umhirðu og þrifnaði utanhúss hjá heimilum, fyrirtækjum, opinberum aðilum og á opnum svæðum innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar.  Megin markmið samþykktarinnar er að tryggja það að íbúar, lóðarhafar og umsjónamenn lóða gangi ekki á rétt annarra íbúa í sveitarfélaginu með athöfnum sýnum, og virði skilmála lóðaleigusamnings viðkomandi lóðar.

Almenn umhirða í kringum lóðir innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar er til fyrirmyndar.   Einstaka þætti má hinsvegar lagfæra og bæta.  Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur fjallað um samþykktina og falið starfsmönnum að beita henni þar sem það á við.

Sveitarfélagið Hornafjörður hvetur fyrirtæki, heimili, opinbera aðila, lóðarhafa og aðra íbúa í Sveitarfélaginu Hornafirði að kynna sér nýstaðfesta samþykkt og tileinka sér þær almennu reglur sem settar eru fram í samþykktinni.   Jafnframt hvetjum við sömu aðila að taka til á lóðum sýnum og gæta almennrar snyrtimennsku innan lóða sinna, koma hlutum sýnum þannig fyrir að þeir séu innan lóðamarka o.s.frv.

Samþykktina má finna hér

Með sameiginlegu átaki allra íbúa sveitarfélagsins má bæta ásýnd þess svo úr verði eitt snyrtilegasta sveitarfélag landsins.

 

Með von um kröftugar og jákvæðar undirtektir

 

Framkvæmda- og fjármálasvið Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica