Fréttir
Ráðhús Hafnar
Ráðhús Hafnar

13.09.2010 Fréttir

Breytingar í ráðhúsi

Síðast liðið sumar létu Erna Einarsdóttir, aðalbókari, og Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi af störfum.  Þann 1. september tóku gildi breytingar á embættum sveitarfélagsins en þær eru helstar að tækni-og umhverfissvið sveitarfélagsins er sameinað fjármálasviði.  

Breytingarnar eru þær að Haukur Ingi Einarsson sem hefur verið framkvæmdastjóra tækni- og umhverfisviði verður framkvæmdastjóri hins nýja sviðs sem fær heitið framkvæmda- og fjármálasvið.  Haukur Ingi verður jafnframt staðgengill bæjarstjóra.   Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs  ber ábyrgð á rekstri sviðsins og hefur umsjón með starfsmannmálum innan þess.  Fjármálastjóri ber ábyrgð á bókhaldi, áætlanagerð og uppgjöri fyrir sveitarfélagið ásamt því að sinna innra eftirliti.  Fjármálastjóri útdeilir verkefnum innan sviðsins er snúa að bókhaldi í samráði við framkvæmdastjóra sviðsins.  Launafulltrúi bætir við sig starfshlutfalli fer úr 80% í 100% starf.  Auk launamála og gerð launaáætlunar fyrir allar stofnanir sveitarfélagsins sinnir launafulltrúi bókhaldi fyrir HSSA.

Auglýst var í starf umhverfis- og skipulagsstjóra og hefur Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, byggingarfræðingur, verið ráðinn. Hann tekur til starfa snemma árs 2011. Meginhlutverk hans verður að hafa umsjón með byggingar-, skipulags-  og umhverfismálum í sveitarfélaginu.
Þessar breytingar fela í sér fækkun um eitt stöðugildi í ráðhúsi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica