Fréttir
Guðjón og Þórhallur að vinna í þakinu
Endurvinnslubraggi
Guðjón og Þórhallur að vinna í þakinu. Mynd: HIE

01.09.2010 Fréttir

ATVINNA - ÞJÓNUSTUSTÖÐ

 

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir að ráða í neðangreind störf þjónustustöðvar.  Um er að ræða tvær fullar stöður.

Verkamaður við sorpmóttöku

Þarf að hafa réttindi sem vigtarmaður. Starfar aðallega við móttöku og flokkun sorps á sorpmóttökustöð undir verkstjórn.  Sinni einnig öðrum almennum störfum svo sem útkeyrslu á pökkum, umhirðu opinna svæða og önnur þau störf sem næsti yfirmaður óskar eftir.

 

Tækjamaður II

Starfar við stjórnun stærri tækja/þungavinnuvéla, t.d. gröfu, jarðýtu, snjóruðningstækja og veghefla. Gerð er krafa um réttindi á stærri vinnuvélar.  Starfsmaðurinn tekur einnig að sér umsjón með opnum svæðum þ.m.t íþrótta- og leiksvæðum.  Starfsmaðurinn þarf einnig að vera liðtækum viðgerðarmaður og sinna öðrum störfum sem næsti yfirmaður óskar eftir. 

________________________________________________________________________________________________________

Umsóknarfrestur er til og með 20 september 2010.  Umsóknum skal skilað á skrifsstofu Ráðhússins fyrir kl 15:30.

Laun samkv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags.

Upplýsingar gefur Birgir Árnason í síma 478-1473 og 895-1473. Einnig má senda umsóknir á netfangið birgir@hornafjordur.is.

Nálgast má umsóknareyðublöð á skrifstofu sveitarfélagsins Hafnarbraut 27 og á heimasíðu sveitarfélagsins http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/ .

Tækni- og umhverfissvið

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica