Fréttir
Björn Lóðs í bakgrunni
Gamla burdarvirkid
Mynd: HIE

31.08.2010 Fréttir

Útboð á endurbótum Bræðslubryggju

 

Sveitarfélagsið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í endurbætur á Bræðslubryggju    

 

 

Rífa skal alla dekkklæðningu af gömlu Bræðslubryggjunni ásamt kanttrjám, einnig á að rífa allt burðavirki á þeim hluta bryggjunnar sem löndunarhúsið stóð á. Eftir að búið er að rífa burðarvirkið skal jafna undir,  steypa landvegg og fylla að honum með grjóti. Reka skal fjóra staura og koma fyrir nýju burðarvirki í stað þess sem rifið var. Koma skal fyrir nýrri dekkklæðningu á alla bryggjuna ásamt nýju kanttré.

 

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. mars 2011

 

Útboðsgögn má nálgast á vef sveitarfélagsins á slóðinni http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/utbod frá og með þriðjudeginum 31. ágúst.  Kjósi bjóðendur að sækja útprentuð útboðsgögn þá verða þau seld hjá Sveitarfélaginu Hornafirði Hafnarbraut 27 á Höfn frá og með þriðjudeginum 31. ágúst.  Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

 

Skila skal tilboðum á sama stað kl. 14:00 fimmtudaginn 16. september 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:05 þann sama dag.

 

Tækni- og umhverfissvið Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica