Nýr körfuboltavöllur vígður í dag
Nýr körfuboltavöllur var tekinn í notkun 1. júlí s.l. Sveitarfélagið Hornafjörður í samstarfi við Körfuknattleiksdeild Sindra stóðu að uppbyggingu vallarins. Völlurinn er staðsettur við hliðina á sparkvellinum á Höfn sem er innan um önnur íþróttamannvirki á svæðinu. Körfuboltavöllurinn er sömu stærðar og þvervellir í íþróttahúsi Hafnar. Völlurinn er samsettur úr plastflísum sem lagðar eru niður á malbik.
Það voru stjórnarmenn í körfuknattleiksdeildinni sem komu körfuboltaiðkendum og aðstandendum þeirra saman og lögðu völlinn niður af einskærri snilld. Ungmennafélagsandinn skein úr hverju andliti þessa stund sem völlurinn var lagður niður. Völlurinn hefur mikið verið notaður frá því hann var lagður niður og mun vonandi gagnast vel fyrir nemendur Grunnskóla Hornafjarðar í framtíðinni.
Þeir sem nota völlinn eru hvattir til að ganga vel um hann, forðast það að hjóla á vellinum, henda rusli í ruslafötur og gæta þess að vera ekki með tyggjó inni á vellinum.
Stjórn körfuknattleiksdeildar Sindra og Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar vígja völlinn miðvikudaginn 25. ágúst kl. 17:00





Skrifa athugasemd