Uppskeruhátíð Skólagarðanna
Skólagarðar 2010
Í sumar, eins og áður, hafa Skólagarðar Hornafjarðar verið starfræktir. Umsjónarmaður Skólgarðanna í ár var Heba Björg Þórhallsdóttir. Heba segir krakkana hafa verið mjög duglega í að hugsa um garðana sína, en þó mis duglega, og er uppskeran mjög góð. Það eru helst rófurnar sem eru að spretta vel, en radísurnar eru vinsælastar hjá krökkunum, aðallega af því að þær koma svo fljótt upp. Annað sem krakkarnir ræktuðu í sumar var t.d. kartöflur, grænkál, spergilkál, hin ýmsu sallöt, oregana og steinselja. Ásóknin í garðana er mikil og voru allir 30 garðarnir í notkun í sumar.
Uppskeruhátíð Skólagarðanna 2010 verður haldið föstudaginn 13 ágúst kl. 11. Við tökum saman upp það grænmeti sem hægt er að taka upp og síðan verða veitt verðlaun fyrir bestu mætinguna. Á eftir fáum við svo pylsur og svala. Gott væri ef nemendurnir hefðu með sér einhver smáverkfæri, s.s. klórur eða skóflur.
Kv. Heba Björg og Steinunn Hödd





Skrifa athugasemd