Nýr og glæsilegur gervigrasvöllur tekinn í notkun.
Meistaraflokkur kvenna voru kátar í kampinn eftir fyrstu æfingu á nýjum gervigrasvelli á Höfn um kvöldmatarleitið í gær ( miðvikudaginn 28. Júlí ). Leikmenn m.fl kvk Sindra voru ánægðar með nýja völlinn og sögðu að æfingin hafi bæði verið mjög góð og erfið.
Völlurinn er 72 m á leng og 52 m á breidd sem er ríflega 1/2 stærð löglegs 11 manna vallar, en á vellinum má keppa í 7 manna bolta sem leikinn er í yngri flokkum. Gæði gervigrassins eru með þeim betri sem gerast á Íslandi í dag samkvæmt upplýsingum frá hönnuði vallarins Peter Jessen hjá VERKÍS. Undir vellinum eru hitalagnir sem ætlað er að halda vellinum frostfríum til að hindra það að völlurinn skemmist. Völlurinn verður einnig lýstur upp með sex ljósamöstrum.
Nýi gervigrasvöllur kemur til með að bæta verulega úr æfingaraðstöðu fyrir knattspyrnuiðkendur yfir vetrarmánuðina og létta álagi af æfingarsvæði yfir sumartímann.
Völlurinn verður formlega vígður þriðjudaginn 3. ágúst n.k. Vígslan verður tilkynnt nánar síðar.
Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs





Skrifa athugasemd