Bókun vegna líkamsræktarstöðva
Undanfarið hefur töluverð umræða verið hér í samfélaginu í tengslum við líkamsræktarstöðvar á Hornafirði. Á bæjarstjórnarfundi sem haldin var í gær, fimmtudag var eftirfarandi bókað eftir Ingu Jónu Halldórsdóttir settum bæjarstjóra um aðdraganda og stöðu mála í tengslum við líkamsræktarstöðvarnar.
" Um málefni líkamsræktarstöðvar sagði hún að veturinn 2001 hefði verið lokað einu starfandi líkamsræktarstöðinni á Hornafirði vegna rekstrarerfiðleika, líkamsræktarstöð sem þá hafði verið starfrækt í 15 ár án aðkomu sveitarfélagsins. Mikil óánægja var með lokunina og talsverður þrýstingur á að sveitarfélagið kæmi á einhvern hátt að málum þannig að unnt yrði að halda rekstrinum áfram. Niðurstaða margra mánaða viðræðna og útboðs sem sent var til tveggja aðila sem sýnt höfðu áhuga á rekstri líkamsræktarstöðvar með aðkomu sveitarfélagsins var sú að keyptur var hluti af líkamsræktartækjum Orkuversins og þau síðan endurlánuð með því skilyrði að unglingar á aldrinum 15 - 20 ára fengju 50% afslátt af kortum. Sumarið 2003 var síðan opnuð ný líkamsræktarstöð á Hornafirði, nokkuð sem engan hafði órað fyrir ári áður. Í ljósi breyttra aðstæðna hefur sveitarfélagið nú sagt upp samningi þeim sem gerður var við Orkuverið. Þegar Sveitarfélagið Hornafjörður gerði á sínum tíma samning um ákveðna aðkomu að rekstri líkamsræktarstöðvar var skýrt tekið fram í útboðsgögnum að aðeins yrði samið við einn aðila og að ekki væri að vænta sambærilegs stuðnings við aðra meðan sá samningur væri í gildi. Í samningnum er kveðið á um 12 mánaða uppsagnarfrest og rennur hann því úr gildi í lok október 2004."





Skrifa athugasemd