Fréttir
Hulda-Laxdal
Hulda-Laxdal

12.05.2010 Fréttir

Ráðning skólastjóra við Grunnskóla Hornafjarðar

 

Hulda Laxdal Hauksdóttir hefur verið ráðin skólastjóri við Grunnskóla Hornafjarðar. Umsækjendur um stöðuna voru upphaflega 7 en tveir drógu umsókn sína til baka í umsagnarferlinu.

Í rökstuðningi skólanefndar fyrir ráðningu Huldu segir: „Skólanefnd leggur til að Hulda Laxdal Hauksdóttir verði ráðin skólastjóri við Grunnskóla Hornafjarðar. Hulda hefur mjög langa reynslu sem skólamaður. Hún hefur kennt á öllum stigum grunnskóla, unnið í sérskóla fyrir fatlaða, kennt við framhaldsskóla og starfað sem aðstoðarskólastjóri í grunnskóla. Hún uppfyllir að öllu leyti þær menntunarkröfur sem taldar voru nauðsynlegar og æskilegar í auglýsingu um hina lausu skólastjórastöðu. Allar umsagnir þeirra sem Capacent leitaði til eru framúrskarandi. Þar kom m.a. fram að hún væri mjög hæf í samskiptum, byggi yfir ágætis stjórnunarhæfileikum, sýndi metnað, hugmyndaauðgi og skipulagshæfni og hefði einlægan áhuga á skólamálum.“

Endanlega var síðan gengið frá ráðningu Huldu á fundi bæjarstjórnar þann 6. maí síðastliðinn. Er henni óskað velfarnaðar í hinu nýja starfi.

 

Stefán Ólafsson

framkvstj. fræðslu- og félagssviðs

Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica