Fréttir
Hart-plast
Hart-plast

13.05.2010 Fréttir

Tökum á móti hörðu plasti

Endurvinnsla hefur gengið vel frá því hún festi sig í sessi hér í Sveitarfélaginu Hornafirði árið 2007.  Stöðugur vöxtur hefur verið í skilum á flokkanlegum úrgangi sem sendur er til endurvinnslu. 

Þessi þróun hefur orðið þess valdandi að kostnaður við urðun hefur dregist saman og sá kostnaður nýttur til að byggja upp aðstöðu flokkunar og styðja við fullt starfshlutfall í málaflokknum.   Nú þegar er hægt að skila til endurvinnslu nytjahluti, raftæki, bylgjupappa, sléttan pappa, brotajárn ( smátt og stórt ), dagblöð, baggaplast, mjúkt plast, dekk og spilliefni.  Nú bætum við einum flokki við sem er hart plast t.d. djúsbrúsar, skyrdósir, mykingarefnibrúsar og þ.h.  Til að byrja með verður hægt að skila hörðu plasti í gámaport við Áhaldahúsið.

 

Tækni- og umhverfissvið Hornafjarðar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica