Malbikun á Höfn
Malbikunarfyrirtækið Hlaðbær Colas leggur nú út malbik í Sveitarfélaginu Hornafirði. Byrjað er að leggja malbik á göngustíg sem er um 1,5 km langur og liggur meðfram hluta vesturstrandar Hafnar. Þessi stígur mun þjóna gangandi fólki og þeim sem ferðast um á léttbúnum hjólabúnaði svo sem barnavagna, línuskauta og hjól. Stígurinn er á engan hátt ætlaður vélknúnum ökutækjum og er þeim tilmælum bent til eigenda og forráðamanna slíkra tækja að virða það og kynna sér jafnframt lög um utanvegaakstur.
Útsýni frá göngustígnum er stórbrotið en þegar horft er til vestur blasir Hornafjörðurinn við í öllu sínu veldi, þar sem hægt er að skoða afar fjölskrúðugt dýra- og náttúrulíf sem og að fylgjast með stöðugum breytingum á firðinum eftir því hvort það er flóð eða fjara. Þegar horft er yfir fjörðinn tekur ekki verri sýn við en Öræfasveit, Suðursveit, Mýrar og Nes láta til sín taka með stórbrotnum jöklum, skriðjöklum og fjalllendi.
Tækni- og umhverfissvið Hornafjarðar





Skrifa athugasemd