Fréttir
Sinu og gróðureldar
Fjorhjol-snubruni-of-fl--030

23.04.2010 Fréttir

Sinu- og gróðureldar

Vakin er athygli á að níu af hverjum tíu gróðureldum eru af manna völdum. Einu náttúrulega orsakir gróðurelda eru vegna eldinga sem að slær niður. Flestir sinu og gróðureldar verða á vorin og snemma sumars og það þarf enga langvarandi þurrka til þess að hætta á gróðureldum skapist. Minna skal á að gróður er einkar þurr núna og þarf oft lítið til þess að koma af stað bruna. Hér á landi þarf að sækja um leyfi til sýslumanns til þess að kveikja bál og einungis ábúendur á jörðum geta fengið leyfi til að brenna sinu á jörðum sínum sbr. lög nr. 61,1992 og reglugerð nr. 157, 1993. Er það tilmæli frá eldvaraeftirliti að farið verð eftir þessu ákvæði í lögum og að náttúru og dýraríki beri ekki skaða af einhverskonar fikti með óvarin eld.

 

Borgþór Freysteinsson Slökkvilið Hornafjarðar Eldvarnaeftirlit.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica