Fréttir
opnun-sundlaug
opnun-sundlaug

20.04.2010 Fréttir

Nýja sundlaugin ársgömul á Sumardaginn fyrsta

Á Sumardaginn fyrsta er ársafmæli nýju sundlaugarinnar. Óhætt er að segja að afmælisbarninu hafi verið vel tekið og það fengið margar og góðar heimsóknir, því um  65.000 gestir hafa litið við og notið gestrisni þess frá opnun.  Brátt fer afmælisbarnið að kasta snuddunni og fyrsta tönnin er komin, það er einlæg ósk þess að sem flestir haldi áfram að heimsækja það og njóta þess sem það býður uppá.  Í tilefni afmælisins ætlar afmælisbarnið að bjóða  öllum þeim sem vilja í smá afmælisveislu.  Afmælisveislan byrjar kl. 10:30 með sundleikfimi  sem er gott fyrir alla að mæta í Kl. 13:00 hefst  afmælissundmóti  Sunddeildar Sindra og sundsýning yngstu iðkendanna með léttu ívafi þar sem m.a. frambjóðendur til bæjarstjórnar í vor reyna með sér og lúðrasveitir koma í heimsókn.  

Afmælisbarnið býður upp á kaffisopa/svala og auðvitað frítt í sund.

Vonumst til að sjá sem flesta samfagna afmælisbarninu frá kl. 10:00 – 17:00.

Starfsmenn Sundlaugar Hafnar og Sunddeild Sindra


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica