Malbikunarflokkur verður á ferðinni í vor í Sveitarfélaginu Hornafirði
Unnið hefur verið að því að fá malbikunarfyrirtæki á svæðið til að leggja út malbik. Malbikunarframkvæmdum sem þessum fylgir fastur kostnaður í formi flutnings á stöð og efni á staðinn. Til að ná hagkvæmu verði á malbiki sameinuðust fjórir aðilar að útboði á útlögn malbiks en gert er ráð fyrir að þessir aðilar malbiki um 30.000 m² í byrjun maí. Samningar hafa náðst við malbikunarfyrirtækið Hlaðbæ Colas hf. (MHC) http://colas.is/ sem varð hlutskarpasta fyrirtækið eftir sameiginlegt útboð Sveitarfélagsins, Skinney Þinganes, Vegagerðarinnar og Urtusteins. Aðilar utan þessarar samningagerðar geta einnig keypt malbik af MHC. Því er þeim aðilum sem hafa áhuga á að kynna sér málið bent á að hafa samband við Gunnar Erlingsson hjá Hlaðbæ Colas í síma 660-1909, eða á netfangið gunnarer@colas.is. Í byrjun maí verður starfsmaður MHC staðsettur á Höfn til ráðgjafar og undirbúnings.
Þegar hugað er að malbikunarframkvæmdum á plönum og annarsstaðar er nauðsynlegt að huga að því hvort þurfi að setja niðurföll í plönin og jöfnunarlag til að fá rétt undirlag fyrir malbikun og rétta halla á plönin. Mjög mikilvægt er að planið sé í réttri hæð áður en malbikað er þar sem malbik er dýrt efni.
Sveitarfélagið stefnir að því að malbika götur og plön sem þarfnast orðið mikils viðhalds og ganga frá hafnarsvæði.
Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs
Sveitarfélagsins Hornafjaraðar





Skrifa athugasemd