Fréttir
veggur
veggur
Mynd 1 af 2
1 2

18.03.2010 Fréttir

Klifurveggur og skiptitjald

Um síðustu helgi var sett upp skiptitjald í íþróttahúsið og klifurveggur. Skiptitjaldið skiptir íþróttasalnum í tvennt  sem gefur möguleika á að hægt er að stunda tvær ólíkar íþróttagreinar samtímis í húsinu.  Eins eykur þetta möguleika skólanna á að nýta húsið betur fyrir skólaíþróttir. Það voru fyrirtæki hér á staðnum,  Segl og saumur og Ísnet  sem hönnuðu og settu upp skiptitjaldið. Klifurvegg hefur verið komið fyrir í einu horni salarins sem gefur möguleika á að æfa sig í klifri. Það voru félagar úr Björgunarfélagi Hornafjarðar sem áttu veg og vanda af kostnaði og uppsetningu veggjarins.  Með komu tjaldsins og veggjarins fæst betri  nýting og meiri fjölbreytni  í  íþróttahússalnum.

 

 

Haukur Helgi Þorvaldsson

Forstöðumaður íþróttamannvirkja

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica