Fréttir
Krakkar við höfnina
Krakkar við höfnina
Krakkar við höfnina

15.10.2003 Fréttir

Unga fólkið heim

Samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands hefur gefið út fækkaði Hornfirðingum um 20 á tímabilinu júlí til september 2003. Ef teknir eru fyrstu 9 mánuðir ársins hefur íbúum sveitarfélagsins fækkað um 40. Á sama tímabili fjölgaði íbúum Austur Héraðs um 74, íbúum Fellahrepps fjölgaði um 14 og Fjarðarbyggðar um 10. Í Djúpavogshrepp fækkaði um 9 íbúa og í Vopnafjarðarhrepp fækkaði um 15. Íbúum Austurlands fjölgaði því um 54 fyrstu 9 mánuði ársins samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.

Það er ljóst af þessum tölum að Hornfirðingar þurfa að auka fjölbreytni í atvinnulífi sveitarfélagsins en standa jafnframt vörð um það sem fyrir er. Mikið af ungu fólki úr sveitarfélaginu er í framhaldsnámi og það þarf að skapa þær aðstæður að heimahagarnir séu spennandi búsetukostur í starfi og leik. Allir vilja jú unga fólkið heim.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica