Fréttir
Útsýni 4
Horft að Höfn frá Miðfellstind
Mynd: HIE

15.02.2010 Fréttir

Umhverfisviðurkenning 2009

Óskað er eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2009

 

Óskað er eftir tilnefningum til Umhverfisviðurkenningar Hornafjarðar fyrir árið 2009

 

Í reglum um viðurkenninguna segir:

Tilgangur viðurkenningarinnar er að vekja íbúa til umhugsunar um gildi náttúru og umhverfis fyrir samfélag og atvinnulíf í Sveitarfélaginu Hornafirði og hvetja þá til að sýna því tilhlýðilega virðingu með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Viðurkenninguna skal veita einstaklingi (um), félagasamstökum, stofnun eða fyrirtæki þ.m.t. lögbýlum til sveita, sem hefur með athöfnum sínum og snyrtimennsku verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúru  og umhverfi að eðlilegum þætti í störfum sínum og rekstri eða hefur á annan hátt lagt mikið af mörkum til verndunar náttúru og umhverfis.

Einnig veitir Sveitarfélagið Hornafjörður árlega viðurkenningar til einstaklinga fyrir snyrtilega lóð eða götu og til fyrirtækja þ.m.t. lögbýli í sveitum fyrir snyrtilega umgengni og útlit.

 

Frestur til að tilnefna er miðvikudaginn 10. mars 2010. Tilnefningar ásamt stuttum rökstuðningi skal skila á skrifstofu Ráðhússins, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði.

 

Hægt er að kynna sér reglurnar á þessari vefslóð.  http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/stjornsyslan/nr/5204

 

 

Fyrir hönd umhverfis- og tæknisviðs,

                                                   Haukur Ingi Einarsson                                 

netfang: haukuri@hornafjordur.is

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica